Markus Söder
Þýskur stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Markus Söder (f. 5. janúar 1967) er þýskur stjórnmálamaður. Hann er núverandi forsætisráðherra Bæjaralands og formaður Kristilega sósíalsambandsins (CSU), systurflokks Kristilega demókrataflokksins (CDU) í Bæjaralandi.
Markus Söder | |
---|---|
Forsætisráðherra Bæjaralands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 16. maí 2018 | |
Forveri | Horst Seehofer |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 5. janúar 1967 (1967-01-05) (57 ára) Nürnberg, Bæjaralandi, Vestur-Þýskalandi (nú Þýskalandi) |
Þjóðerni | Þýskur |
Stjórnmálaflokkur | Kristilega sósíalsambandið (CSU) |
Maki | Karin Baumüller |
Trúarbrögð | Lúterskur |
Börn | 4 |
Háskóli | Háskólinn í Erlangen |
Undirskrift |
Söder gekk í ungliðahreyfingu CSU þegar hann var sextán ára gamall. Hann útskrifaðist með gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Erlangen undir lok níunda áratugarins og vann í blaðamennsku í byrjun tíunda áratugarins. Árið 1994 var hann kjörinn á landsþing Bæjaralands.
Frá 1995 til 2003 var Söder formaður ungliðahreyfingar CSU en varð síðan aðalritari flokksins þegar hann var 36 ára gamall. Hann tók sæti í ríkisstjórn Bæjaralands árið 2007 þegar Günther Beckstein útnefndi hann sambands- og Evrópumálaráðherra. Hann varð umhverfisráðherra árið 2008 og fjármálaráðherra þremur árum síðar. Árið 2018 varð hann forsætisráðherra Bæjaralands.
Í apríl 2021 tilkynnti Söder að hann hygðist sækjast eftir útnefningu CDU og CSU til þess að verða kanslaraefni flokkanna í þingkosningum í september sama ár[1] en Armin Laschet, formaður Kristilegra demókrata, var að endingu valinn sem frambjóðandi flokksins.[2]