Mario Vargas Llosa
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jorge Mario Pedro Vargas Llosa, fyrsti markgreifinn af Vargas Llosa (f. 28. mars 1936) er perúískur rithöfundur, ritgerðarsmiður og stjórnmálamaður. Mario er meðal vinsælustu rithöfunda í hinum spænskumælandi heimi. Hann starfaði áður sem blaðamaður og tók þátt í stjórnmálum í Perú. Hann bauð sig fram sem forseta landsins árið 1990 en laut í lægra haldi fyrir Alberto Fujimori. Hann hefur hlotið fjölda bókmenntaverðlauna fyrir verk sín, ekki bara í heimalandi sínu heldur víða um heim, svo sem Planeta-verðlaunin 1993 og Cervantes-verðlaunin 1995. Árið 2010 hlaut hann Nóbelsverðlaunin í bókmenntum „fyrir að hafa kortlagt innviði valdsins og skapað hnífskarpar myndir af mótstöðu einstaklingsins, uppreisn hans og falli.“
Mario Vargas Llosa, árið 2005. | |
Fæddur: | 28. mars 1936 (1936-03-28) (88 ára) Arequipa, Perú |
---|---|
Starf/staða: | Rithöfundur, stjórnmálamaður, háskólakennari |
Þjóðerni: | Perúskur |
Bókmenntastefna: | Módernismi og póstmódernismi |
Þekktasta verk: | La Ciudad y Los Perros (1831) La casa verde (1965/1968) Conversación en la catedral (1969/1975) |
Maki/ar: | Julia Urquidi (g. 1955; skilin 1964) Patricia Llosa (g. 1965; skilin 2015) Isabel Preysler (2015-) |
Börn: | 3, þ. á m. Álvaro Vargas Llosa |
Undirskrift: |
Vargas Llosa hóf feril sinn árið 1959 með smásagnasafninu Los Jefes (Yfimennirnir) en hann sló fyrst í gegn með skáldsögunni La Ciudad y Los Perros (Borgin og hundarnir) sem kom út árið 1963. Hann er einna þekktastur fyrir skáldsögur sínar: La casa verde (1965/1968) (Græna húsið) og Conversación en la catedral (1969/1975) (Samtal í dómkirkjunni).