Makaríos 3.
1. forseti Kýpur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Makaríos 3. (gríska: Μακάριος Γ΄); fæddur undir nafninu Míkaíl Krístodúlú Múskos (gríska: Μιχαήλ Χριστοδούλου Μούσκος) (13. ágúst 1913 – 3. ágúst 1977) var grísk-kýpverskur prestur og stjórnmálamaður sem var erkibiskup og prímati kýpversku rétttrúnaðarkirkjunnar (1950–1977) og fyrsti forseti Kýpur (1960–1977). Á þremur kjörtímabilum sínum sem forseti eyríkisins tókst Makaríosi að lifa af fjögur morðtilræði og valdaránstilraun árið 1974.[1] Grískir Kýpverjar líta gjarnan á Makaríos sem landsföður eða „Eþnarka“ kýpversku þjóðarinnar.[2]
Staðreyndir strax Forseti Kýpur, Varaforseti ...
Makaríos 3. Μακάριος Γ΄ | |
---|---|
Forseti Kýpur | |
Í embætti 16. ágúst 1960 – 15. júlí 1974 | |
Varaforseti | Fazıl Küçük (1959–1973) Rauf Denktaş (1973–1974) |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Níkos Sampson |
Í embætti 7. desember 1974 – 3. ágúst 1977 | |
Varaforseti | Enginn |
Forveri | Glavkos Klíríðís |
Eftirmaður | Spýros Kýpríanú |
Erkibiskup Kýpur | |
Í embætti 18. september 1950 – 3. ágúst 1977 | |
Forveri | Makaríos 2. |
Eftirmaður | Khrýsostomos 1. |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 13. ágúst 1913 Pano Panagia, Pafos, Kýpur |
Látinn | 3. ágúst 1977 (63 ára) Nikósíu, Kýpur |
Þjóðerni | Kýpverskur |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundinn |
Trúarbrögð | Rétttrúnaðarkirkjan |
Háskóli | Aþenuháskóli Boston-háskóli |
Undirskrift |
Loka