Lukku-Láki
belgískar teiknimyndasögur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lukku-Láki (franska: Lucky Luke) er heiti á vinsælum belgískum teiknimyndasögum sem segja frá ævintýrum Lukku-Láka, kúreka sem er fljótari en skugginn að skjóta, í Villta Vestrinu. Persónan er sköpunarverk belgíska teiknarans Morris (Maurice de Bevere) og birtist fyrsta ævintýrið í teiknimyndablaðinu Sval (franska: Spirou) í október 1946. Frá og með árinu 1955 voru handrit að sögunum um Lukku-Láka samin af franska myndasöguhöfundinum René Goscinny og í samstarfi þeirra Morris og Goscinny náðu bækurnar miklum vinsældum. Eru þær nú meðal mest seldu teiknimyndasagna Evrópu og hafa verið þýddar á hartnær 30 tungumál, þar á meðal ensku, arabísku, þýsku, dönsku, grísku, hebresku, tyrknensku og ítölsku. Á árunum 1977 til 1983 komu fjölmargar Lukku-Láka bækur út á íslensku á vegum Fjölvaútgáfunnar. Íslensk útgáfa Lukku-Láka hófst á ný árið 2016 á vegum Frosks útgáfu og hafa nú komið út fimm bækur.
Ekki er að finna neinar vísbendingar í sköpunarsögu Lukku-Láka, sem til dæmis má lesa um í Allt um Lukku-Láka, um að hann hafi verið til eða eigi sér ákveðna fyrirmynd. Hins vegar eiga fjölmargar aðrar persónur í bókunum um Lukku-Láka sér beinar fyrirmyndir, annað hvort teknar beint úr sögu villta vestursins eða þekktar ímyndir úr samtímasögu vesturlanda þegar bækurnar voru gerðar.