Málverk
From Wikipedia, the free encyclopedia
Málverk er flötur sem hefur verið settur litum, annaðhvort með penslum eða öðrum verkfærum, jafnvel höndum. Flöturinn getur verið veggur, léreft, gler eða pappír o.s.frv. Málverk í listrænum tilgangi er samsetning sem líkist fyrirmyndinni eða er byggt upp af hinum ýmsu formum eða formleysum. Talað er um hlutbundna og óhlutbundna list. Hvortveggja getur verið gert eftir ákveðinni listastefnu til að tjá þá sýn eða hughrif sem listamaðurinn ætlar að framkalla. Með elstu málverkum sem vitað er um eru hellamálverkin í Grotte Chauvet í Frakklandi sem eru frá steinöld.