Lewis Carroll
From Wikipedia, the free encyclopedia
Charles Lutwidge Dodgson (27. janúar 1832 – 14. janúar 1898), betur þekktur undir höfundarnafninu Lewis Carroll, var breskur heimspekingur, rökfræðingur, stærðfræðingur, ljósmyndari, prestur og rithöfundur. Hann er þekktastur fyrir það að hafa skrifað bókina Ævintýri Lísu í Undralandi, og framhald hennar Í gegnum spegilinn, ásamt skopljóðinu Snarksveiðin og bullljóðið Jabberwocky.
Ljósmynd af Lewis Carroll sem hann tók sjálfur, með aðstoð. | |
Fæddur: | 27. janúar 1832 Daresbury, Cheshire, Englandi |
---|---|
Látinn: | 14. janúar 1898 (65 ára) Guildford, Surrey, Englandi |
Starf/staða: | Rithöfundur, myndskreytari, ljóðskáld, stærðfræðingur, ljósmyndari, kennari |
Þjóðerni: | Breskur |
Bókmenntastefna: | Barnabókmenntir, fantasía |
Þekktasta verk: | Ævintýri Lísu í Undralandi (1865) Í gegnum spegilinn (1871) |
Undirskrift: |
Hann hafði dálæti á orðaleikjum, rökvillum, þrautum og ævintýrum, og hæfni hans hefur heillað fólk á öllum aldri. Verk hans hafa verið vinsæl frá því að þau voru gefin út og hafa haft víðtæk áhrif á barnabækur. Margir 20. aldar rithöfundar hafa orðið fyrir verulegum áhrifum af verkum Lewis Carroll, til dæmis Jorge Luis Borges og James Joyce.
Félög hafa verið stofnuð víða um heim til þess að rannsaka og kynna verk Lewis Carrolls, svo sem í Englandi, Bandaríkjunum, Japan og Nýja Sjálandi.