Lesótó
Land í sunnanverðri Afríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lesótó er landlukt land í sunnanverðri Afríku, umlukt Suður-Afríku á allar hliðar. Nafn landsins þýðir nokkurn veginn „land þeirra sem tala sesótó“. Lesótó er í Breska samveldinu. Íbúar eru rétt rúmlega tvær milljónir. Nær allir íbúar landsins eru sesótómælandi Basótar (Bantúþjóð). Landið er þróunarland þar sem um helmingur íbúa lifir af landbúnaði og um 40% eru undir alþjóðlegum fátæktarmörkum. Tíðni HIV-smita í Lesótó er sú önnur mesta í heimi, 23,6% íbúa eru með veiruna.
Mmuso wa Lesotho | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Khotso, Pula, Nala (sesótó) Friður, regn, velsæld | |
Þjóðsöngur: Lesotho Fatse La Bontat'a Rona | |
Höfuðborg | Maserú |
Opinbert tungumál | sesótó, enska |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Letsie 3. |
Forsætisráðherra | Moeketsi Majoro |
Sjálfstæði | |
• frá Bretlandi | 4. október 1966 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
137. sæti 30.355 km² ~0 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar |
144. sæti 2.108.328 68,1/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2017 |
• Samtals | 7,448 millj. dala (172. sæti) |
• Á mann | 3.868 dalir (200. sæti) |
VÞL (2019) | 0.527 (165. sæti) |
Gjaldmiðill | loti (L) |
Tímabelti | UTC+2 |
Þjóðarlén | .ls |
Landsnúmer | +266 |
Áður hét Lesótó Basútóland og var undir stjórn Breta. Þegar Suður-Afríkusambandið varð til 1910 hófst vinna við að sameina Basútóland sambandinu. Íbúarnir voru hins vegar mótfallnir sameiningu og þegar kynþáttaaðskilnaður var lögleiddur í Suður-Afríku, stöðvaðist sameiningarferlið alveg. Landið var svo nefnt Lesótó þegar það fékk fullt sjálfstæði frá Bretum 4. október 1966.