Lanzhou
höfuðborg og stærsta borg Gansu héraðs í norðurvesturhluta Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lanzhou (kínverska: 兰州; rómönskun: Lánzhōu; Lan-chou), er höfuðborg og stærsta borg Gansu héraðs í norðurvesturhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Hún er stjórnsýslu-, efnahags- vísinda- menningar- og samgöngumiðstöð héraðsins. Borgin situr í miðju héraðsins við bakka efri hluta Gulafljóts. Hún er lykill að svæðisbundnum samgöngum sem tengja svæði vesturhluta Kína með járnbrautum til austurhluta landsins. Norðursilkivegurinn forðum lá um borgina og henni er ætlað að verða framtíðartenging Kína við Evrasísu. Lanzhou er borg stóriðju og jarðefnaiðnaðar. Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Lanzhou um 5,3 milljónir manna.