Lögmál Keplers
From Wikipedia, the free encyclopedia
Lögmál Keplers eru þrjú lögmál um gang reikistjarnanna um sólu, sett fram af Johannes Kepler snemma 17. öld. Hann leiddi þau út með rannsóknum á gögnum sem Tycho Brahe hafði safnað. Lögmálin eru:
- Reikistjörnurnar ganga um sólu eftir sporbaug með sólina í öðrum brennipunktinum.
- Tengilína sólar og reikistjörnu fer ávallt yfir jafnstórt flatarmál á jafnlöngum tíma. (Þ.e. reikistjarnan ferðast hraðar þegar hún er nær sólu).
- Umferðartími reikistjörnunnar í öðru veldi er í réttu hlutfalli við hálfan langás sporbaugsins í þriðja veldi.().