Ketanji Brown Jackson
Bandarískur hæstaréttardómari / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ketanji Brown Jackson (f. 14. september 1970) er bandarískur lögfræðingur og hæstaréttardómari. Hún var dómari við áfrýjunardómstól í Columbia-umdæmi frá árinu 2021 til ársins 2022. Árið 2022 tilnefndi Joe Biden Bandaríkjaforseti Jackson til Hæstaréttar Bandaríkjanna eftir að hæstaréttardómarinn Stephen Breyer tilkynnti að hann hygðist setjast í helgan stein. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti tilnefningu Jacksons þann 7. apríl. Jackson er fyrsta svarta Bandaríkjakonan til að sitja við Hæstarétt Bandaríkjanna.
Staðreyndir strax Dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, Forveri ...
Ketanji Brown Jackson | |
---|---|
Dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna | |
Núverandi | |
Tók við embætti 30. júní 2022 | |
Forveri | Stephen Breyer |
Dómari við áfrýjunardómstól Columbia-umdæmis | |
Í embætti 17. júní 2021 – 30. júní 2022 | |
Forveri | Merrick Garland |
Eftirmaður | Florence Y. Pan |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 14. september 1970 (1970-09-14) (53 ára) Washington, D.C., Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarísk |
Maki | Patrick Jackson (g. 1996) |
Börn | 2 |
Háskóli | Harvard-háskóli |
Starf | Lögfræðingur |
Loka