Karl hertogi af Orléans
From Wikipedia, the free encyclopedia
Karl af Valois (24. nóvember 1394 – 5. janúar 1465) var hertogi af Orléans frá 1407 til dauðadags og einnig hertogi af Valois, greifi af Beaumont-sur-Oise og Blois og erfði Asti á Ítalíu eftir móður sína. Hann var jafnframt ljóðskáld og orti flest ljóða sinna á meðan hann var fangi eða gísl í Englandi í nær aldarfjórðung.