Karl 10. Frakkakonungur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Karl 10. (9. október 1757 – 6. nóvember 1836) var konungur Frakklands. Hann tók við völdum árið 16. september 1824 en stóð sig ekki vel. Í stað þess að slaka á klónni hafði hann uppi tilburði til að hrifsa öll völd í sínar hendur. Parísarbúar gripu til vopna og reistu götuvígi. Eftir þriggja daga götubardaga neyddist konungurinn til að flýja land. Valdatíð hans lauk 2. ágúst 1830. Karl lést 1836 úr kóleru.
Staðreyndir strax
| ||||
Karl 10. | ||||
Ríkisár | 16. september 1824 – 2. ágúst 1830 | |||
Skírnarnafn | Charles-Philippe de France | |||
Fæddur | 9. október 1757 | |||
Versalahöll, Versölum, Frakklandi | ||||
Dáinn | 6. nóvember 1836 (79 ára) | |||
Görz, austurríska keisaradæminu | ||||
Gröf | Kostanjevica-klaustur, Slóveníu | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Loðvík erfðaprins | |||
Móðir | María Jósefa af Saxlandi | |||
Drottning | María Teresa af Savoju | |||
Börn | Louis, Sophie, Charles Ferdinand |
Loka
Karl var síðasti konungurinn af aðalgrein Búrbónaættar og síðasti franski einvaldurinn sem ríkti með titlinum „konungur Frakklands“ (Loðvík Filippus var „konungur Frakka“ og Napóleon 3. var Frakkakeisari).