Kali Yuga
From Wikipedia, the free encyclopedia
Kali Yuga (Devanāgarī: कलियुग, bókstaflega: „öld Kali“, einnig „öld lasta, ódyggða, hnignunar, spillingar“), er síðasta tímaskeiðið af þeim fjórum sem heimurinn og siðmenning manna gengur í gegnum samkvæmt yuga hringrásinni sem lýst er í indverskum helgiritum. Önnur tímaskeið eða "aldir" eru Satya Yuga, Treta Yuga og Dvapara Yuga.
Vedaritin lýsa því hvernig siðmenning manna muni hnigna á meðan Kali Yuga stendur. Þetta tímabil er kallað „myrka öldin“ eða „járnöldin“ því mannkynið er eins langt frá guðdómnum og það mögulega kemst. Siðferði og réttsýni (Dharma) innan hindúismans er oft sýnt á táknfræðilegan hátt sem tarfur eða naut. Á Satya Yuga, fyrsta tímaskeiði hringrásarinnar, sem er hin eiginlega "gullöld", hefur nautið fjórar lappir en eftir því sem hvert nýtt yuga gengur í garð dregur úr siðferði og réttsýni, því sverfast fætur nautsins. Á öld Kali, sem á að vera okkar nútíma öld, er réttsýni og siðferðiskennd orðin aðeins fjórðungur af því sem það var á Satya Yuga, svo dharma-nautið er orðið einfætt.
Kali Yuga er kennd við djöfulinn Kali og varast ber að rugla honum saman við gyðjuna Kālī. Orðið Kali í tengslum við Kali Yuga þýðir „erfiði“, „misklíð“, „ágreiningur“ eða „rifrildi“.