Javier Milei
Forseti Argentínu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Javier Gerardo Milei (f. 22. október 1970) er argentínskur hagfræðingur og stjórnmálamaður sem er núverandi forseti Argentínu. Milei er frjálshyggjumaður og er talinn utangarðsmaður í argentínskum stjórnmálum. Hann náði kjöri í forsetakosningum Argentínu þann 19. nóvember 2023 með fyrirheitum um róttækar stefnubreytingar í anda frjálshyggju, meðal annars um að láta leggja niður seðlabanka landsins og taka upp Bandaríkjadal í stað argentínska pesans. Milei er gjarnan borinn saman við popúlíska hægrileiðtoga í öðrum löndum á borð við Donald Trump og Jair Bolsonaro.
Staðreyndir strax Forseti Argentínu, Varaforseti ...
Javier Milei | |
---|---|
Forseti Argentínu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 10. desember 2023 | |
Varaforseti | Victoria Villarruel |
Forveri | Alberto Fernández |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 22. október 1970 (1970-10-22) (53 ára) Búenos Aíres, Argentínu |
Stjórnmálaflokkur | Frjálshyggjuflokkurinn |
Maki | Fátima Flórez (í sambúð frá 2023) |
Háskóli | Háskólinn í Belgrano Instituto de Desarrollo Económico y Social Torcuato di Tella-háskóli |
Starf | Hagfræðingur, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka