Isaac Herzog
Forseti Ísraels / From Wikipedia, the free encyclopedia
Isaac „Bougie“ Herzog (f. 22. september 1960) er ísraelskur stjórnmálamaður sem hefur verið forseti Ísraels frá 7. júlí 2021.
Isaac Herzog יצחק הרצוג | |
---|---|
Forseti Ísraels | |
Núverandi | |
Tók við embætti 7. júlí 2021 | |
Forsætisráðherra | Naftali Bennett Yair Lapid Benjamin Netanjahú |
Forveri | Reuven Rivlin |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 22. september 1960 (1960-09-22) (63 ára) Tel Avív, Ísrael |
Þjóðerni | Ísraelskur |
Stjórnmálaflokkur | Verkamannaflokkurinn |
Maki | Michal Herzog |
Trúarbrögð | Gyðingdómur |
Börn | 3 |
Háskóli | Háskólinn í Tev Avív Cornell-háskóli New York-háskóli |
Isaac Herzog er sonur Chaims Herzog, fyrrum forseta Ísraelsríkis og er lögfræðingur að atvinnu. Herzog var ritari ríkisstjórnarinnar frá 1999 til 2001 og sat á Knesset-þinginu frá 2003 til 2018. Hann gegndi ýmsum ráðherraembættum frá 2005 til 2011, meðal annars embætti velferðarráðherra frá 2007 til 2011 í ríkisstjórnum Ehuds Olmert og Benjamins Netanjahú.
Herzog var formaður ísraelska Verkamannaflokksins og Síonistabandalagsins frá 2013 til 2017. Hann var leiðtogi stjórnarandstöðunnar frá 2013 til 2018 og var forsætisráðherraefni Verkamannaflokksins í þingkosningum árið 2015. Árið 2021 var hann kjörinn forseti Ísraels af Knesset-þinginu og tók við embættinu þann 7. júlí 2021.