Indira Gandhi
3. forsætisráðherra Indlands (1917-1984) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Indira Priyadarshini Gandhi (19. nóvember 1917 - 31. október 1984) var indverskur stjórnmálamaður og forsætisráðherra Indlands 1966-1977 og 1980-1984 dóttir Jawaharlal Nehru fyrsta forsætisráðherra Indlands en alls óskyld Mohandas Gandhi. Hún var móðir Rajiv Gandhi forsætisráðherra Indlands 1984-1989. Hún giftist Feroze Gandhi 1942. Hún stundaði nám í Somerville College í Oxford.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Indlands, Persónulegar upplýsingar ...
Indira Gandhi | |
---|---|
Forsætisráðherra Indlands | |
Í embætti 24. janúar 1966 – 24. mars 1977 | |
Í embætti 14. janúar 1980 – 31. október 1984 | |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 19. nóvember 1917 Allahabad, breska Indlandi |
Látin | 31. október 1984 (1984-10-31) (39 ára) Nýju Delí, Indlandi |
Dánarorsök | Myrt |
Stjórnmálaflokkur | Indverski þjóðarráðsflokkurinn |
Maki | Feroze Gandhi (g. 1942; d. 1960) |
Börn | Sanjay Gandhi, Rajiv Gandhi |
Foreldrar | Jawaharlal Nehru og Kamala Kaul |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka
Indira Gandhi var myrt í garðinum við heimili sitt í Nýju Delí af tveimur lífvörðum sínum, sem voru síkar, sem hefnd fyrir það þegar indverski herinn gerði árás á Gullna hofið, helgidóm síka í Amritsar í júní 1984.