Hu Jintao
Fyrrum leiðtogi Alþýðulýðveldisins Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hu Jintao (胡|锦|涛 á kínversku) (fæddur 21. desember 1942) var leiðtogi Kínverska Alþýðulýðveldisins á árunum 2002 til 2013. Hann var Aðalritari kommúnistaflokksins í Kína frá 2002 til 2012, forseti Kínverska Alþýðulýðveldisins frá 2003 til 2013 og formaður Hermálaráðs Kína frá 2004 til 2012. Hann telst til svokallaðrar „fjórðu kynslóðar“ leiðtoga í Alþýðulýðveldisins Kína.
- Þetta er kínverskt nafn: kenni- eða fjölskyldunafnið er Hu, eiginnafnið er Jintao.
Hu Jintao 胡锦涛 | |
---|---|
Aðalritari kínverska kommúnistaflokksins | |
Í embætti 15. nóvember 2002 – 15. nóvember 2012 | |
Forveri | Jiang Zemin |
Eftirmaður | Xi Jinping |
Forseti Alþýðulýðveldisins Kína | |
Í embætti 15. mars 2003 – 14. mars 2013 | |
Forsætisráðherra | Wen Jiabao |
Varaforseti | Zeng Qinghong Xi Jinping |
Forveri | Jiang Zemin |
Eftirmaður | Xi Jinping |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 21. desember 1942 (1942-12-21) (81 árs) Taizhou, Jiangsu, Kína |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Kína |
Maki | Liu Yongqing (g. 1949) |
Börn | Hu Haifeng, Hu Haiqing |
Háskóli | Tsinghua-háskóli |
Starf | Verkfræðingur, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Hu (sem er fjölskyldunafn hans) hefur varið nær allri starfsæfi sinni í kommúnistaflokknum, sem flokksleiðtogi í Sjálfstjórnarhéraðinu Tíbet, seinna sem ritari á skrifstofu Aðalritara Kínverska kommúnistaflokksins og að lokum sem varaforseti hins frjálslynda Jiang Zemin sem beitti sér fyrir nútímavæðingu Kína.
Hu hefur verið lýst sem hlédrægum stjórnanda. Frami hans til lýsir umskiptunum á hinum gamla forystukerfi kommúnista til yngri raunsærri embættismanna. Hann studdi mjög nútímavæðingu Kína en hefur í seinni tíð beitt sér fyrir auknum afskiptum af hagkerfinu. Hann hefur að mestu þótt íhaldssamur í pólitískum umbótum.
Í utanríkismálum var Hu talsmaður nálgunar sem nefnd hefur verið „friðsamleg þróun Kína“ þar sem sóst er eftir „mjúkum völdum“ í alþjóðasamskiptum. Á valdatíma Hu hafa áhrif Kínverska Alþýðulýðveldisins í Afríku, Rómönsku Ameríku og öðrum þróunarríkjum aukist mjög.
Pólitískri hugmyndafræði Hu hefur í stuttu máli verið lýst sem leit að „samfélagi jafnvægis og friðsamlegs vaxtar“ innanlands og friðsamlegum þróun á alþjóðavettvangi.
Hu settist í helgan stein árið 2013. Við honum tók Xi Jinping sem Aðalritari kommúnistaflokksins og forseti Kína.