Heinrich Himmler
Þýskur nasisti og leiðtogi SS-sveitanna (1900-1945) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Heinrich Luitpold Himmler (7. október 1900 – 23. maí 1945) var yfirmaður Gestapó og SS sveitanna í Þýskalandi og einn af valdamestu mönnum landsins á tímum Hitlers og nasismans. Hann fæddist í München í kaþólska miðstéttarfjölskyldu. Faðir hans var Joseph Gebhard Himmler kennari og skólastjóri við fínan menntaskóla en móðir Anna Maria Himmler (upprunalega Heyder). Hann átti tvo bræður, annan yngri og hinn eldri. Himmler var handtekinn í lok stríðsins þann 22. maí og voru fljótlega borin kennsl á hann. Hann framdi sjálfsmorð daginn eftir með blásýrupillu.
Staðreyndir strax Leiðtogi SS-sveitanna (Reichsführer-SS), Staðgengill ...
Heinrich Himmler | |
---|---|
Leiðtogi SS-sveitanna (Reichsführer-SS) | |
Í embætti 9. janúar 1929 – 29. apríl 1945 | |
Staðgengill | Reinhard Heydrich |
Forveri | Erhard Heiden |
Eftirmaður | Karl Hanke |
Yfirmaður þýsku lögreglunnar | |
Í embætti 17. júní 1936 – 29. apríl 1945 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Karl Hanke |
Innanríkisráðherra Þýskalands | |
Í embætti 24. ágúst 1943 – 29. apríl 1945 | |
Kanslari | Adolf Hitler |
Forveri | Wilhelm Frick |
Eftirmaður | Paul Giesler |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 7. október 1900 München, Bæjaralandi, þýska keisaradæminu |
Látinn | 23. maí 1945 (44 ára) Lüneburg, Hanover, Þýskalandi |
Dánarorsök | Sjálfsmorð með blásýrupillu |
Stjórnmálaflokkur | Nasistaflokkurinn |
Maki | Margarete Boden (g. 1928) |
Börn | Gudrun, Helge, Nanette |
Starf | Grasafræðingur |
Undirskrift |
Loka