Harbin
höfuðborg Heilongjiang héraðs í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Harbin (kínverska: 哈尔滨; rómönskun: Hā'ěrbīn), er höfuðborg og fjölmennasta borg Heilongjiang héraðs í norðausturhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Hún er stjórnsýslu-, efnahags- vísinda- menningar- og samgöngumiðstöð Norðaustur-Kína. Borgin er í suðurhluta héraðsins og situr við suðurbakka Songhua fljóts. Loftslagið er svalt, með köldum fjögurra til fimm mánaða vetrum sem geta farið niður í allt að −40 °C. Þá verður Harbin að hrífandi „ísborg“ með risastórum ísskúlptúrum. Íbúðafjölgun þessarar risaborgar hefur verið gríðarleg síðustu áratugi. Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Harbin um 10 milljónir manna.