Harún Alrasjid
From Wikipedia, the free encyclopedia
Harún Alrasjid (arabíska: هَارُون الرَشِيد) (17. mars 763 eða febrúar 766 – 24. mars 809) var fimmti kalífi Abbasída. Viðurnefnið Alrasjid merkir „hinn réttsýni“ eða „hinn rétttrúaði“. Harún var kalífi frá 786 til 809, á hápunkti íslömsku gullaldarinnar. Valdatíð Harúns var blómaskeið á sviði arabískra vísinda, trúariðkunar, menningar, myndlistar og tónlistar. Harún stofnaði bókasafnið Bayt al-Hikma („hús viskunnar“) í Bagdad og Bagdad varð ein helsta menningar-, mennta- og verslunarborg síns tíma. Árið 796 færði Harún hirð sína og stjórnarmiðstöð til Al-Raqqah í Sýrlandi.
| ||||
Harún Alrasjid هَارُون الرَشِيد | ||||
Ríkisár | 14. september 786 – 24. mars 809 | |||
Skírnarnafn | Harún ar-Rasjid ibn Múhammeð al-Mahdi | |||
Fæddur | 17. mars 763 eða febrúar 766 | |||
Rey, Jibal, Abbasídaveldinu (nú Íran) | ||||
Dáinn | 24. mars 809 | |||
Tus, Khorasan, Abbasídaveldinu (nú Íran) | ||||
Gröf | Gröf Harúns Alrasjid í Ímam Reza-moskunní í Mashad, Íran | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Al-Mahdi | |||
Móðir | Al-Khayzuran | |||
Konur | Ýmsar, þ. á m. Zubaidah bint Ja`far | |||
Börn | Muhammad al-Amin, Abdallah al-Ma'mun, Muhammad al-Mu'tasim, al-Qasim, Abdan, Sukaynah |
Harún tók á móti sendiboðum frá Frankaveldinu árið 799. Hann sendi þá heim með ýmsar gjafir til Karlamagnúsar, þar á meðal vatnsklukku sem mældi tímann með því að drjúpa bronskúlum í skál. Karlamagnúsi þótti svo mikið til koma að hann taldi helst að klukkan væri töfragripur. Harún stofnaði einnig til bandalags við kínverska Tangveldið.
Ævintýrabókin Þúsund og ein nótt gerist að miklu leyti í glæstri hirð Harúns Alrasjid og Harún sjálfur birtist sem persóna í mörgum sögunum. Í sögunum dulbýr Harún sig gjarnan sem alþýðumann og blandar þannig geði við þegna sína.