Hadríanus
From Wikipedia, the free encyclopedia
Publius Aelius Traianus Hadrianus (24. janúar 76 – 10. júlí 138) var keisari Rómaveldis frá 117 til 138 af aelísku ættinni. Hann var sá þriðji af góðu keisurunum fimm. Hann var ættingi Trajanusar sem ættleiddi hann sem erfingja sinn á dánarbeðinu. Hann barði niður aðra gyðingauppreisnina 135 sem leiddi til herferðar gegn gyðingdómi; gyðingum var bannað að fara inn í Jerúsalem og Júdea var endurskírð Syria Palaestina. Í valdatíð hans ríkti þó friður að mestu leyti og hann einbeitti sér að því að styrkja innviði ríkisins með opinberum framkvæmdum og varnarvirkjum eins og Hadríanusarmúrnum í norðurhluta Bretlands.
Staðreyndir strax Valdatími, Fæddur: ...
Hadríanus | |
Rómverskur keisari | |
Valdatími | 117 – 138 |
---|---|
Fæddur: |
24. janúar 76 |
Fæðingarstaður | Róm eða Italica, Hispaniu |
Dáinn: |
10. júlí 138 |
Dánarstaður | Baiae, Campaniu |
Forveri | Trajanus |
Eftirmaður | Antonínus Píus |
Maki/makar | Vibia Sabina |
Faðir | Publius Aelius Hadrianus Afer |
Móðir | Domitia Paulina |
Fæðingarnafn | Publius Aelius Hadrianus |
Keisaranafn | Caesar Publius Aelius Traianus Hadrianus Augustus |
Ætt | Nervu-Antonínska ættin |
Tímabil | Góðu keisararnir fimm |
Loka