Gilbert du Motier de La Fayette
Franskur herforingi og stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Marie-Joseph Paul Yves Roch Gilbert du Motier, markgreifi af La Fayette (6. september 1757 – 20. maí 1834), yfirleitt kallaður La Fayette eða Lafayette í Bandaríkjunum, var frjálslyndur franskur aðalsmaður, herforingi og stjórnmálamaður. La Fayette barðist í bandaríska frelsisstríðinu og varð návinur George Washington, Alexanders Hamilton og Thomasar Jefferson. La Fayette lék einnig lykilhlutverk í frönsku byltingunni árið 1789 og í júlíbyltingunni árið 1830.
Gilbert du Motier de La Fayette | |
---|---|
Fæddur | 6. september 1757 |
Dáinn | 20. maí 1834 (76 ára) París, Frakklandi |
Menntun | Parísarháskóli |
Störf | Herforingi, stjórnmálamaður |
Trú | Kaþólskur |
Maki | Adrienne de Noailles (g. 1774; d. 1807) |
Foreldrar | Michel du Motier de La Fayette & Marie Louise Jolie de La Rivière |
Undirskrift | |
La Fayette var kallaður „hetja heimanna tveggja“ fyrir frægðarverk sín bæði í Ameríku og Frakklandi. Hann er einn af átta einstaklingum sem hafa verið lýstir heiðursborgarar Bandaríkjanna en hann hlaut þá stöðu ekki fyrr en árið 2002, löngu eftir dauða sinn.
Eftir byltinguna árið 1789 byrjaði La Fayette að undirrita nafn sitt sem „Lafayette“ í einu orði til þess að lýsa yfir andstöðu við ríkjandi aðalskerfi.