Gabriela Mistral
From Wikipedia, the free encyclopedia
Lucila Godoy Alcayaga (7. apríl 1889 – 10. janúar 1957), þekktari undir listamannsnafninu Gabriela Mistral var síleskt skáld, kennari, erindreki og húmanisti. Hún hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1945, fyrst rithöfunda frá Rómönsku Ameríku. Í ljóðum sínum fjallaði Mistral meðal annars um svikráð, ást, móðurást, sorg og hvernig sjálfsmynd Rómönsku Ameríku hefur þróast út frá áhrifum bæði Evrópumanna og amerískra frumbyggja. Mynd af Mistral er á síleskum 5.000 pesa seðlum.
Staðreyndir strax Fædd:, Látin: ...
Gabriela Mistral árið 1945. | |
Fædd: | 7. apríl 1889 Vicuña, Síle |
---|---|
Látin: | 10. janúar 1957 (67 ára) Hempstead, New York, Bandaríkjunum |
Starf/staða: | Skáld, kennari, erindreki |
Þjóðerni: | Sílesk |
Virk: | 1914–1957 |
Bókmenntastefna: | Húmanismi |
Undirskrift: |
Loka