Gabriel Attal
Forsætisráðherra Frakklands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Gabriel Attal (f. 16. mars 1989) er franskur stjórnmálamaður úr Endurreisnarflokknum sem hefur verið forsætisráðherra Frakklands frá 9. janúar 2024.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Frakklands, Forseti ...
Gabriel Attal | |
---|---|
Forsætisráðherra Frakklands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 9. janúar 2024 | |
Forseti | Emmanuel Macron |
Forveri | Élisabeth Borne |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 16. mars 1989 (1989-03-16) (35 ára) Clamart, Frakklandi |
Þjóðerni | Franskur |
Stjórnmálaflokkur | Endurreisn (2016–) Sósíalistaflokkurinn (2006–2016) |
Háskóli | Sciences Po Université Paris-Panthéon-Assas |
Undirskrift |
Loka
Attal var kjörinn á franska þingið í júní 2017 og náði skjótum pólitískum frama. Hann varð aðstoðarmaður mennta- og ungmennamálaráðherra Frakklands árið 2018, fjölmiðlafulltrúi ríkisstjórnarinnar árið 2020, ráðherra opinberra framkvæmda og útgjalda árið 2022 og mennta- og ungmennamálaráðherra árið 2023.
Þann 9. janúar 2024 var Attal útnefndur af Emmanuel Macron forseta til að taka við af Élisabeth Borne sem forsætisráðherra Frakklands. Attal, sem var þá 34 ára, varð yngsti forsætisráðherra í sögu landsins og fyrsti samkynhneigði maðurinn til að gegna embættinu.