Fáni
dúkur með auðkennilegu litamunstri / From Wikipedia, the free encyclopedia
Fáni er dúkur með auðkennilegu litamunstri og er annar endi hans festur við stöng en hinn lafir laus. Fánar eru m.a. notaðir sem þjóðfánar, þ.e. tákn lands og þjóðar eða í auglýsinga- eða áróðursskyni. Skipafánar eru notaðir í samskiptum á hafi úti. Fánar voru líklega upprunalega notaðir í hernaði, til að herforingjar gætu fylgst með framvindu orrustna og sent skilaboð milli herfylkinga. Að vinna fána óvinarins var tákn um sigur í orrustunni.