Frumeind
From Wikipedia, the free encyclopedia
Frumeind eða atóm er smæsta aðgreinanlega eining frumefnis, sem jafnframt hefur efnafræðilega eiginleika þess til að bera. Frumeind er þannig grundvallareining efna og helst óbreytt í efnahvörfum.
Hver frumeind er úr þremur gerðum einda:
- nifteindum sem ekki hafa hleðslu
- rafeindum sem eru neikvætt hlaðnar
- róteindum sem eru jákvætt hlaðnar