Flekkusótt
Hópur smitsjúkdóma / From Wikipedia, the free encyclopedia
Flekkusótt (typhus) er hópur smitsjúkdóma af völdum bakteríusýkinga. Einkenni eru hár hiti, höfuðverkur og útbrot sem byrja vanalega einni til tveimur vikum eftir smit.[1][2]
Flekkusótt nær yfir eftirfarandi sjúkdóma:
- Útbrotataugaveiki, sem er af völdum Rickettsia prowazekii bakteríunnar og dreifist með lúsum sem lifa á mönnum.
- Kjarrflekkusótt, sem er af völdum Orientia tsutsugamushi bakteríunnar og berst með mítlum.
- Rottuflóaflekkusótt, sem er af völdum Rickettsia typhi bakteríunnar sem dreifist með flóum sem lifa á rottum.