Fidel Castro
Kúbverskur byltingarmaður og einræðisherra (1926-2016) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Fidel Alejandro Castro Ruz (13. ágúst 1926 – 25. nóvember 2016) var fyrrverandi forseti Kúbu og ríkti sem einræðisherra. Hann leiddi byltinguna á Kúbu, ásamt Che Guevara og fleirum, og hafði sigur 1. janúar 1959. Hann varð forsætisráðherra Kúbu 18. febrúar það ár. Brátt kólnuðu samskipti Kúbu og Bandaríkjanna þegar stjórn Castros hóf að taka eignarnámi land sem tilheyrði bandarískum stórfyrirtækjum eins og United Fruit. Stjórnin hallaði sér þá að Sovétríkjunum og undirritaði olíukaupasamning við þau 1960. Castro og stjórn hans breyttu Kúbu smám saman í flokksræði þar sem komið var á samyrkjubúum í landbúnaði, land tekið eignarnámi og iðnaður þjóðnýttur.
Staðreyndir strax Forseti Kúbu, Varaforseti ...
Fidel Castro | |
---|---|
Forseti Kúbu | |
Í embætti 2. desember 1976 – 24. febrúar 2008 | |
Varaforseti | Raúl Castro |
Forveri | Osvaldo Dorticós Torrado |
Eftirmaður | Raúl Castro |
Forsætisráðherra Kúbu | |
Í embætti 16. febrúar 1959 – 2. desember 1976 | |
Forseti | Manuel Urrutia Lleó Osvaldo Dorticós Torrado |
Forveri | José Miró Cardona |
Eftirmaður | Hann sjálfur sem forseti |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 13. ágúst 1926 Birán, Kúbu |
Látinn | 25. nóvember 2016 (90 ára) Havana, Kúbu |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Kúbu (1965–2016) |
Maki | Mirta Diaz-Balart (g. 1948; skilin 1955) Dalia Soto del Valle (g. 1980) |
Börn | 11 |
Starf | Byltingarmaður, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka