Fernando Collor de Mello
32. forseti Brasilíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Fernando Affonso Collor de Mello (f. 12. ágúst 1949) er brasilískur stjórnmálamaður sem var forseti Brasilíu frá 15. mars 1990 til 29. desember 1992.
Fernando Collor de Mello | |
---|---|
Forseti Brasilíu | |
Í embætti 15. mars 1990 – 29. desember 1992 | |
Varaforseti | Itamar Franco |
Forveri | José Sarney |
Eftirmaður | Itamar Franco |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 12. ágúst 1949 (1949-08-12) (74 ára) Rio de Janeiro, Brasilíu |
Þjóðerni | Brasilískur |
Stjórnmálaflokkur | Brasilíski verkamannaflokkurinn (frá 2022) |
Maki | Celi Elisabete Júlia Monteiro de Carvalho (g. 1975; sk. 1981) Rosane Malta (g. 1984; sk. 2005) Caroline Serejo Medeiros (g. 2006) |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Börn | 5 |
Háskóli | Háskólinn í Brasilíu |
Undirskrift |
Collor de Mello er úr kunnri stjórnmála- og viðskiptafjölskyldu. Hann sat á fulltrúadeild brasilíska þingsins frá 1983 til 1987 og var síðan fylkisstjóri Alagoas. Árið 1989 bauð hann sig fram í forsetakosningum Brasilíu með stuðningi Þjóðlega endurreisnarflokksins (PRN) og vann sigur í annarri umferð á móti Luiz Inácio Lula da Silva, frambjóðanda Verkamannaflokksins. Collor de Mello varð fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Brasilíu eftir endalok herforingjastjórnarinnar í landinu og jafnframt yngsti forsetinn í sögu landsins.
Collor de Mello sagði af sér eftir tæp þrjú ár í embætti til þess að forðast að vera kærður fyrir spillingu af öldungadeild þingsins. Varaforseti hans, Itamar Franco, tók við forsetaembættinu. Eftir afsögn hans var Collor dæmdur sekur og honum bannað að gegna opinberu embætti í átta ár (frá 1992 til 2000). Hann var síðar sýknaður af hæstarétti landsins.
Eftir sýknunina hélt Collor áfram þátttöku í stjórnmálum. Hann var kjörinn öldungadeildarþingmaður fyrir Alagoas árið 2006 og endurkjörinn árið 2015. Hann viðraði hugmyndir um forsetaframboð fyrir Kristilega verkamannaflokkinn árið 2018.