Femínismi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Femínismi er samheiti yfir ýmsar pólitískar og hugmyndafræðilegar stefnur, þar sem sóst er eftir og barist fyrir jafnrétti kynjanna í víðum skilningi. Meðal þess sem greinir á eru mismunandi skoðanir á því hvað ójafnrétti er, hvernig það lýsir sér og hvernig skuli unnið gegn því. Meðal algengra baráttumála femínista eru barátta fyrir jöfnum launum kynjanna, barátta gegn mansali, vændi, útlitsdýrkun og svonefndri „klámvæðingu“ samfélagsins, barátta fyrir rétti til þungunarrofs (fóstureyðinga) og rétti kvenna til menntunar, atvinnu og annarra tækifæra til jafns við karla og barátta fyrir jöfnum áhrifum kynjanna í stjórnmálum og viðskiptum.
Heimildir skortir fyrir staðhæfingum í þessari grein. Ef þú vilt bæta við heimild vinsamlegast bættu þeim við undir nýrri fyrirsögn („Heimildir“) eða skildu eftir athugasemd á spjallsíðunni. |
Á heimasíðu Femínistafélagsins er skilgreining á femínista:
- „Femínisti er manneskja sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því.“