Feitur fiskur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Feitur fiskur er fiskur þar sem stór hluti fisksins er fita. Fiskar með mikið fituinnihald eru oft uppsjávarfiskar sem halda sig venjulega við yfirborð vatna eða sjávar á allt að 1000 metra dýpi. Þessir fiskar halda sig í torfum og lifa að mestu á dýrasvifi. Fitan í þessum fiskum dreifist um allt flakið og umhverfis kviðarholið, en er ekki aðeins að finna í lifrinni eins og hjá öðrum fiskum.