Feisal 1. Írakskonungur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Feisal 1. bin Hússein bin Alí al-Hasjemi (arabíska: فيصل بن الحسين بن علي الهاشمي; 20. maí 1885 – 8. september 1933) var konungur arabíska konungsríkisins Sýrlands árið 1920 og síðan konungur Íraks frá 1921 til 1933. Hann var þriðji sonur Hússeins bin Alí, sjarífsins af Mekka, sem hafði lýst sjálfan sig konung arabaríkjanna í október árið 1916.
| ||||
Feisal 1. فيصل الأول | ||||
Ríkisár | 8. mars 1920 – 24. júlí 1920 (sem konungur Sýrlands) 23. ágúst 1921 – 8. september 1933 (sem konungur Íraks) | |||
Skírnarnafn | Feisal bin Hússein bin Alí al-Hasjemi | |||
Fæddur | 20. maí 1885 | |||
Mekka, Tyrkjaveldi | ||||
Dáinn | 8. september 1933 (48 ára) | |||
Bern, Sviss | ||||
Gröf | Konunglega grafhýsið í Adhamiyah, Bagdad, Írak | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Hussein bin Alí | |||
Móðir | Abdiyah bint Abdullah | |||
Drottning | Huzaima bint Nasser | |||
Börn | 5 |
Feisal hvatti til samstöðu súnní- og sjíamúslima og reyndi að skapa sérstaka arabíska þjóðernishyggju sem átti að vera grunnur að nýju arabísku þjóðríki sem skyldi spanna Írak, Sýrland og allan frjósama hálfmánann. Feisal reyndi á valdatíð sinni að gæta fjölbreytni í stjórn sinni og taka tillit til margvíslegra trúarhópa og þjóðarbrota. Áhersla hans á arabíska þjóðernishyggju kann hins vegar að hafa leitt til einangrunar tiltekinna trúarhópa.