Edward Rydz-Śmigły
Pólskur herforingi og stjórnmálamaður (1886-1941) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Edward Rydz-Śmigły marskálkur (11. mars 1886 – 2. desember 1941) var pólskur herforingi sem naut mikilla áhrifa í öðru pólska lýðveldinu á millistríðsárunum. Rydz-Śmigły varð æðsti maður pólska hersins eftir andlát Józefs Piłsudski árið 1935 og var í reynd valdamesti maður Póllands í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar.
Staðreyndir strax Yfireftirlitsmaður pólska hersins, Forseti ...
Edward Rydz-Śmigły | |
---|---|
Yfireftirlitsmaður pólska hersins | |
Í embætti 12. maí 1935 – 7. nóvember 1939 | |
Forseti | Ignacy Mościcki |
Forveri | Józef Piłsudski |
Eftirmaður | Władysław Sikorski |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 11. mars 1886 Brzeżany, Austurríki-Ungverjalandi (nú Berezjany, Ternopílfylki, Úkraínu) |
Látinn | 2. desember 1941 (55 ára) Varsjá, Póllandi |
Þjóðerni | Pólskur |
Maki | Marta Zaleska |
Undirskrift |
Loka
Rydz-Śmigły stýrði vörnum Pólverja í innrásinni í Pólland árið 1939 en bað ósigur gegn innrásarherjum Þjóðverja og Sovétmanna. Eftir ósigurinn flúði Rydz-Śmigły til Rúmeníu en sneri síðar aftur til Póllands til að taka þátt í andspyrnu gegn hernáminu. Hann lést á sóttarsæng stuttu síðar, þann 2. desember 1941.