Eduard Sjevardnadse
Forseti Georgíu (1928-2014) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Eduard Ambrosíjevítsj Sjevardnadse (georgíska: ედუარდ ამბროსის ძე შევარდნაძე; 25. janúar 1928 – 7. júlí 2014) var georgískur stjórnmálamaður og erindreki. Hann var fyrsti ritari georgíska kommúnistaflokksins og eiginlegur leiðtogi georgíska sovétlýðveldisins frá 1972 til 1985. Hann var jafnframt utanríkisráðherra Sovétríkjanna frá 1985 til 1991. Sjevardnadse bar ábyrgð á mörgum lykilákvörðunum í sovéskri utanríkisstefnu á valdatíð Míkhaíls Gorbatsjov, meðal annars um endursameiningu Þýskalands. Eftir upplausn Sovétríkjanna varð Sjevardnadse leiðtogi sjálfstæðrar Georgíu frá 1992 til 2003. Hann neyddist til að láta af völdum árið 2003 eftir rósabyltinguna svokölluðu.
Staðreyndir strax Forseti Georgíu, Forveri ...
Eduard Sjevardnadse ედუარდ შევარდნაძე | |
---|---|
Forseti Georgíu | |
Í embætti 26. nóvember 1995 – 23. nóvember 2003 | |
Forveri | Zviad Gamsakhurdia |
Eftirmaður | Nino Burdjanadse (starfandi) |
Utanríkisráðherra Sovétríkjanna | |
Í embætti 2. júlí 1985 – 20. desember 1990 | |
Forsætisráðherra | Níkolaj Tíkhonov Níkolaj Ryzhkov |
Forveri | Andrej Gromyko |
Eftirmaður | Aleksandr Bessmertnykh |
Í embætti 19. nóvember 1991 – 26. desember 1991 | |
Forsætisráðherra | Ívan Sílajev |
Forveri | Borís Pankín (starfandi) |
Eftirmaður | Embætti lagt niður |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 25. janúar 1928 Mamati, Gúríu, georgíska sovétlýðveldinu, Sovétlýðveldinu Transkákasíu, Sovétríkjunum |
Látinn | 7. júlí 2014 (86 ára) Tíblisi, Georgíu |
Þjóðerni | Georgískur (áður sovéskur) |
Stjórnmálaflokkur | Borgarabandalag Georgíu (1995–2003) Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna (1948–1991) |
Maki | Nanuli Sjevardnadse (g. 1951; d. 2004) |
Börn | 2 |
Undirskrift |
Loka