Edgar Rice Burroughs
bandarískur rithöfundur (1875-1950) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Edgar Rice Burroughs (1. september, 1875 – 19. mars, 1950) var bandarískur rithöfundur sem er þekktastur fyrir bækur sínar um frumskógarhetjuna Tarzan og ævintýri geimfarans John Carter. Hann skrifaði mikinn fjölda skáldsagna af ýmsu tagi.
Fyrstu sögur hans komu út sem framhaldssögur í tímaritum á borð við The All-Story og The Argosy. Árið 1923 stofnaði hann sitt eigið útgáfufyrirtæki.