Dred Scott
From Wikipedia, the free encyclopedia
Dred Scott (um 1799 – 17. september 1858) var bandarískur þræll sem reyndi árið 1857 að lögsækja eiganda sinn til þess að vinna frelsi sitt og fjölskyldu sinnar. Dómsmálið hét formlega Dred Scott gegn Sandford en er jafnan kennt við Scott og kallað Dred Scott-málið. Scott hélt því fram að þar sem hann og kona hans, Harriet Robinson Scott, hefðu búið í átta ár í fylkjum þar sem þrælahald var ólöglegt, hefði þeim í reynd þegar hlotnast frelsi.
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Dred Scott | |
---|---|
Fæddur | U.þ.b. 1799 |
Dáinn | 17. september 1858 (u.þ.b. 59 ára) |
Dánarorsök | Berklar |
Þjóðerni | Bandarískur |
Störf | Þræll, síðar flutningamaður |
Þekktur fyrir | Dred Scott-málið |
Maki | Harriet Robinson Scott |
Börn | Eliza, Lizzie |
Loka