Draumur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Draumar eru sýnir, hljóð eða önnur skynjun sem fólk upplifir í svefni, sem mynda oftast samfellda frásögn um eitthvað tiltekið efni. Rannsóknir vísindamanna hafa sýnt fram á að draumar séu oft uppgjör á deginum og hreinsun í undirmeðvitundinni sem hefur geymt miklar, jafnvel ónothæfar upplýsingar yfir daginn. Það er þess vegna sem draumar fylgja oft tilfinningum þess sem dreymir, sbr. martraðir. Rannsóknir hafa einnig sýnt að sum dýr dreymir.
Draumar eiga stóran þátt í menningarsögunni, bæði almenningur og fræðimenn hafa velt fyrir sér tilgangi og merkingu þeirra. Menn trúa því oft að draumar merki eitthvað og að það eigi að taka mark á þeim. Í Íslendingasögunum eru mörg dæmi um að draumar hafi verið fyrirboðar og frægustu draumarnir eru draumar Guðrúnar Ósvífursdóttur í Laxdælu.