Desmond Tutu
Suður-afrískur biskup og Nóbelsverðlaunahafi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Desmond Mpilo Tutu (7. október 1931 – 26. desember 2021) var suður-afrískur biskup og guðfræðingur sem var þekktur fyrir baráttu sína gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku og fyrir önnur störf í þágu mannréttinda. Tutu var biskup ensku biskupakirkjunnar í Jóhannesarborg frá 1985 til 1986 og síðan erkibiskup Höfðaborgar frá 1986 til 1996. Tutu var fyrsti þeldökki maðurinn til að gegna þessum embættum. Tutu reyndi að blanda hugmyndum úr svartri guðfræði og afrískri guðfræði en í stjórnmálum taldi hann sig til sósíalista.
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Desmond Tutu | |
---|---|
Fæddur | 7. október 1931 Klerksdorp, Suður-Afríku |
Dáinn | 26. desember 2021 (90 ára) |
Menntun | King's College London |
Störf | Biskup, guðfræðingur |
Þekktur fyrir | Baráttu gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku og önnur mannréttindastörf |
Trú | Enska biskupakirkjan |
Maki | Nomalizo Leah Tutu (g. 1955) |
Börn | 4 |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (1984) |
Undirskrift | |
Loka