Dalian
stórborg í Liaoning héraði í norðaustur Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Dalian (kínverska: 大连市 ; rómönskun: Dàlián) er stórborg í Alþýðulýðveldinu Kína staðsett í suðurhluta Liaoning héraðs, sem er í norðaustur Kína. Borgin er mikilvæg menningar-, iðnaðar-, viðskipta -, og samskiptamiðstöð.
Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Dalian um 7,5 milljónir manna, sem gerir hana að annarri stærstu borg Liaoning héraðs á eftir höfuðborginni Shenyang.
Dalian er á suðurodda Liaodong-skagans við Bóhaíhaf og Gulahaf. Þar er góð djúpsjávarhöfn sem jafnframt er nyrsta íslausa höfn Kína. Höfnin er notuð til viðskipta við lönd eins og Rússland, Norður- og Suður-Kóreu og Japan.