Constantin Fehrenbach
Kanslari Þýskalands (1852-1926) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Constantin Fehrenbach (11. janúar 1852 – 26. mars 1926) var þýskur stjórnmálamaður sem var einn af helstu leiðtogum kaþólska Miðflokksins á árum Weimar-lýðveldisins. Hann var forseti þýska ríkisþingsins árið 1918 og forseti stjórnlagaþingsins í Weimar frá 1919 til 1920. Í júní árið 1920 varð Fehrenbach kanslari Þýskalands. Hann sagði af sér í maí næsta ár til að mótmæla stríðsskaðabótum sem Þýskaland átti að greiða bandamönnum úr fyrri heimsstyrjöldinni. Fehrenbach leiddi þingflokk Miðflokksins frá 1923 til dauðadags árið 1926.
Staðreyndir strax Kanslari Þýskalands, Forseti ...
Constantin Fehrenbach | |
---|---|
Kanslari Þýskalands | |
Í embætti 21. júní 1920 – 4. maí 1921 | |
Forseti | Friedrich Ebert |
Forveri | Hermann Müller |
Eftirmaður | Joseph Wirth |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 11. janúar 1852 Wellendingen, Þýskalandi |
Látinn | 26. mars 1926 (74 ára) Freiburg, Þýskalandi |
Stjórnmálaflokkur | Miðflokkurinn |
Maki | Maria Hossner (g. 1879) |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Börn | 1 |
Háskóli | Háskólinn í Freiburg |
Starf | Lögfræðingur, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka