Brandenborg
eitt af 16 sambandslöndum Þýskalands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Brandenborg (þýska: Brandenburg; neðri sorbneska: Bramborska; efri sorbneska: Braniborska) er fimmta stærsta sambandsland Þýskalands með rúmlega 29 þús km². Landið er í austurhluta Þýskalands og umlykur Berlín, sem er sjálfstætt sambandsland. Fyrir norðan er Mecklenborg-Vorpommern, fyrir norðvestan er Neðra-Saxland, fyrir vestan er Saxland-Anhalt og fyrir sunnan er Saxland. Auk þess nær Brandenborg að Póllandi að austan. Íbúar eru tiltölulega fáir, aðeins 2,5 milljónir talsins (2021). Margar ár og mikið votlendi eru einkennandi fyrir Brandenborg. Þar má helst nefna Saxelfi, Odru, Havel og Spree. Fyrir vestan borgina Cottbus er eitt stærsta votlendissvæði Þýskalands, Spreewald. Borgir eru fáar og ekki mjög stórar. Höfuðborgin er Potsdam.
Nánari upplýsingar Fáni Brandenborgar, Skjaldarmerki Brandenborgar ...
Fáni Brandenborgar | Skjaldarmerki Brandenborgar |
---|---|
Upplýsingar | |
Opinbert tungumál: | Þýska, sorbneska |
Höfuðstaður: | Potsdam |
Flatarmál: | 29.485,63 km² |
Mannfjöldi: | 2.500.000 (2021) |
Þéttleiki byggðar: | 83/km² |
Vefsíða: | brandenburg.de |
Stjórnarfar | |
Forsætisráðherra: | Dietmar Woidke (SPD) |
Lega | |
Loka