Búrkína Fasó
From Wikipedia, the free encyclopedia
Búrkína Fasó er landlukt land í Vestur-Afríku með landamæri að Malí í norðri, Níger í austri, Benín í suðaustri, Tógó og Gana í suðri og Fílabeinsströndinni í vestri. Landið hét Efri-Volta til ársins 1984 þegar því var breytt í Búrkína Fasó sem merkir „land hinna uppréttu“ á tungumálunum mossi og djúla, sem eru tvö stærstu mál innfæddra. Franska er opinbert tungumál landsins, en aðeins um 15% íbúa tala frönsku daglega.[1] Í landinu eru töluð 59 frumbyggjamál, en um helmingur íbúa talar mossi.[2][3]
Búrkína Fasó | |
Burkina Faso | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Unité, Progrès, Justice (franska) (Eining, framfarir, réttlæti) | |
Þjóðsöngur: Une seule nuit | |
Höfuðborg | Ouagadougou |
Opinbert tungumál | Franska |
Stjórnarfar | Herforingjastjórn |
Forseti | Ibrahim Traoré |
Forsætisráðherra | Apollinaire Joachim Kyélem de Tambèla |
Sjálfstæði | |
• frá Frakklandi | 5. ágúst, 1960 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
74. sæti 274.200 km² 0,146 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
58. sæti 21.510.181 64/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 45,339 millj. dala (115. sæti) |
• Á mann | 2.207 dalir (172. sæti) |
VÞL (2019) | 0.452 (182. sæti) |
Gjaldmiðill | Vesturafrískur CFA-franki |
Tímabelti | UTC |
Þjóðarlén | .bf |
Landsnúmer | +226 |
Landið fékk sjálfstæði frá Frökkum árið 1960. Lengsta stjórnartíð eftir það átti Blaise Compaoré sem komst til valda eftir hallarbyltingu árið 1987. Hann neyddist til að segja af sér vegna útbreiddra mótmæla ungs fólks 31. október 2014. Forsetakosningar voru haldnar árið 2015 þar sem Roch Marc Christian Kaboré var kjörinn forseti. Kaboré var steypt af stóli árið 2022 og landið var aftur sett undir herforingjastjórn.