Ariel Sharon
Forsætisráðherra Ísraels / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ariel Sharon (hebreska: אריאל שרון) (26. febrúar 1928 – 11. janúar 2014) var fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels og herforingi. Hann fékk heilablæðingu í starfi í byrjun árs 2006 og lá lengst af meðvitundarlaus síðan þar til hann lést. Þáverandi varaforsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, tók við sem starfandi forsætisráðherra í veikindum Sharons. Flokkur þeirra, Kadima, vann stórsigur í ísraelsku þingkosningunum sem fram fóru 28. mars 2006 og Olmert tók formlega við forsætisráðherraembættinu 14. apríl sama ár eftir að hafa verið starfandi forsætisráðherra síðan 4. janúar.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Ísraels, Forseti ...
Ariel Sharon אריאל שרון | |
---|---|
Forsætisráðherra Ísraels | |
Í embætti 7. mars 2001 – 14. apríl 2006 | |
Forseti | Moshe Katsav |
Forveri | Ehud Barak |
Eftirmaður | Ehud Olmert |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 26. febrúar 1928 Kfar Malal, Palestínu |
Látinn | 11. janúar 2014 (85 ára) Ramat Gan, Ísrael |
Þjóðerni | Ísraelskur |
Stjórnmálaflokkur | Likud (1977–2005) Kadima (2005–2006) |
Maki | Margalit Sharon (g. 1953; d. 1962), Lily Sharon (g. 1963; d. 2000) |
Börn | 3 |
Háskóli | Hebreski háskólinn í Jerúsalem Háskólinn í Tel Aviv |
Starf | Herforingi, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka