American Idol
From Wikipedia, the free encyclopedia
American Idol (Bandaríska stjörnuleitin) er sjónvarpskeppni þar sem leitað er að nýrri söngstjörnu. Þátturinn er einn af Idol-seríunni. Þátturinn var búinn til af Simon Fuller sem afbrigði af breska þættinum Pop Idol sem var sýnt 2001-2003. Þann 11. júní 2002 fór American Idol: The Search For a Superstar í loftið á FOX-sjónvarpstöðinni og er hann orðinn einn vinsælasti þátturinn í sögu bandarísks sjónvarps. Hann er með hæstu áhorfendatölurnar og er eini þátturinn sem hefur náð þeim árangri sex ár í röð.
American Idol | |
---|---|
Einnig þekkt sem |
|
Tegund | Raunveruleikasjónvarp |
Búið til af | Simon Fuller |
Byggt á | Pop Idol |
Þróun | Simon Fuller |
Leikstjóri |
|
Kynnir |
|
Dómarar |
|
Höfundur stefs |
|
Upprunaland | Bandaríkin |
Frummál | Enska |
Fjöldi þáttaraða | 21 |
Fjöldi þátta | 681 |
Framleiðsla | |
Aðalframleiðandi |
|
Staðsetning | Áheyrnaprufur: Mismunandi staðir Hollywood prufur: Kodak leikhúsið í Hollywood Undanúrslit og úrslit: CBS Television City Úrslitaþáttur: Nokia leikhúsið. |
Lengd þáttar | 22 – 104 mín. |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð |
|
Sýnt | 11. júní 2002 (2002-06-11) – í dag |
Tenglar | |
IMDb tengill |
Þátturinn leitar að besta söngvara landsins í gegnum raðir áheyrnaprufa sem eru haldnar um allt land og síðan velur almenningur sigurvegarann. Í gegnum SMS skilaboð og símhringingar hafa áhorfendur valið fyrrum sigurvegara Kelly Clarkson, Ruben Studdard, Fantasiu Barrino, Carrie Underwood, Taylor Hicks, Jordin Sparks, David Cook, Kris Allen og Lee DeWyze. Sá hópur sem má taka þátt er á aldrinum 16-28 ára. Aldurstakmarkið var 24 ár í fyrstu þremur þáttaröðunum.
Í þáttunum starfar dómnefnd sem gagnrýnir frammistöður keppendanna: Grammy-verðlaunahafinn, plötuframleiðandinn og umboðsmaður í tónlistarbransanum Randy Jackson og verðlaunahafinn tónlistarframleiðandi og umboðsmaðurinn Simon Cowell hafa verið dómarar öll árin. Grammy- og Emmy-verðlaunahafinn, poppsöngkonan og danshöfundurinn Paula Abdul var dómari í þáttunum fyrstu átta árin. Í upphafi voru aðeins þrír dómarar en söngkonan, lagahöfundurinn og plötuframleiðandinn Kara DioGuardi var bætt við sem fjórða dómaranum í áttundu þáttaröðinni. Þann 9. september 2009 var staðfest að Emmy-verðlaunahafinn og þáttastjórnandinn Ellen DeGeneres myndi taka stað Paulu Abdul í dómnefndinni í 9. þáttaröðinni. 11. janúar 2010 tilkynnti Simon Cowell að hann myndi yfirgefa þættina til að láta reyna á bandarísku útgáfu The X Factor þáttanna árið 2011.
Ryan Seacrest hefur verið kynnir þáttanna frá upphafi. Fyrsta árið var grínistinn Brian Dunkleman einnig kynnir. Rickey Minor stýrir American Idol hljómsveitinni.
Entertainment Weekly setti þáttinn á í-lok-áratugarins listann sinn og sagði „Hann hefur gefið okkur Kelly, Carrie, Daughtry og J. Hud. Idol er besti raunveruleikaþátturinn vegna þess að hann er sigurvegari áhorfendakannana FOX og honum er haldið uppi af frábærleika. Og Taylor Hicks? Hann er undantekningin sem sannar regluna.“
Tuttugu og ein þáttaröð hefur verið gerð af American Idol.