alþjóðlegt, samræmt flokkunarkerfi UNESCO á mismunandi skólastigum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþjóðlega menntunarflokkunin (ISCED) er tölfræðirammi til að skipuleggja, samræma og flokka upplýsingar um skólastig og skólakerfi heimsins. Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) heldur utan um flokkunina. ISCED er hluti af alþjóðlegu flokkunarkerfi Sameinuðu þjóðanna á efnahag og félagslegum aðstæðum aðildarríkjanna.