Akíra Kúrósava
japanskur kvikmyndagerðarmaður (1910-1998) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Akíra Kúrósava (japanska: 黒澤 明) (23. mars 1910 - 6. september 1998) var margverðlaunaður japanskur kvikmyndaleikstjóri, framleiðandi og handritshöfundur. Ferill hans spannaði 50 ár, frá fyrstu mynd hans Sugata Sanshiro frá árinu 1943 að þeirri síðustu Madadayo frá 1993.
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Akíra Kúrósava | |
---|---|
黒澤 明 | |
Fæddur | 23. mars 1910(1910-03-23) Shinagawa í Tókýó í Japanska keisaradæminu |
Dáinn | 6. september 1998 (88 ára) Setagaya í Tókýó í Japan |
Þjóðerni | Japanskur |
Störf | Kvikmyndaleikstjóri, handritshöfundur, framleiðandi, klippari |
Ár virkur | 1936-1993 |
Hæð | 182 cm |
Maki | Yōko Yaguchi (g. 1945; lést 1985) |
Börn | 2 |
Verðlaun | Gullljónið (1951) Gullpálminn (1980) Óskarsverðlaunin (1990) |
Undirskrift | |
Loka
Árið 1954 gerði hann kvikmyndina Sjö samúræjar sem hann fékk ári síðar silfurljónið á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Árið 1976 fékk hann Óskarsverðlaun fyrir bestu erlendu kvikmyndina; Dersu Urzala. Árið 1980 hlotnaðist honum Gullpálminn á Kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir Kagemusha og tveimur árum síðar fékk hann Gullljónið í Feneyjum fyrir glæstan feril. Árið 1990 var honum veitt heiðursviðurkenning fyrir glæstan feril á Óskarsverðlaunaafhendingunni.