Óskarsverðlaunin
bandarísk kvikmyndaverðlaun / From Wikipedia, the free encyclopedia
Óskarsverðlaunin (enska: Academy Awards eða óformlega the Oscars) eru bandarísk kvikmyndaverðlaun veitt kvikmyndagerðarmönnum og öðrum sem starfa við kvikmyndir. Verðlaunahátíðin er yfirleitt sú best kynnta og mest áberandi á Vesturlöndum, og verðlaunin af flestum talin þau eftirsóknarverðustu. Óskarsverðlaunin eru veitt af Bandarísku kvikmyndaakademíunni (Academy of Motion Picture Arts and Sciences), samtökum fólks sem starfar við kvikmyndagerð í Bandaríkjunum, og er aðild að þeim einungis veitt í heiðursskyni.
Óskarsverðlaunin | |
---|---|
Veitt fyrir | Framúrskarandi árangur í kvikmyndagerð |
Land | Bandaríkin |
Umsjón | Bandaríska kvikmyndaakademían |
Fyrst veitt | 16. maí 1929 |
Vefsíða | oscars |
Árið 2003 voru 5.816 meðlimir í akademíunni með kosningarétt við val á Óskarsverðlaunahöfum. Óskarsverðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1929.
Fyrsta framlag Íslands til tilnefningar á Óskarsverðlaunahátið var myndin Land og synir eftir Ágúst Guðmundsson frá árinu 1980 en það var í 53. sinn sem hátíðin var haldin.