Ísabella 2. Spánardrottning
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ísabella 2. (10. október 1830 – 9. apríl 1904) var drottning Spánar frá 1833 til 1868. Hún kom til ríkis þegar hún var smábarn en Karlistar, sem studdu tilkall Karls greifa af Molina til krúnunnar, neituðu lengi að viðurkenna lögmæti valdatöku hennar vegna þess að hún var kona. Eftir stormasama valdatíð var Ísabellu steypt af stóli í dýrlegu byltingunni árið 1868 og hún sagði formlega af sér árið 1870. Sonur hennar, Alfons 12., varð konungur árið 1874.
Staðreyndir strax
| ||||
Ísabella 2. | ||||
Ríkisár | 29. september 1833 – 30. september 1868 | |||
Skírnarnafn | María Isabel Luisa de Borbón y Borbón-Dos Sicilias | |||
Fædd | 10. október 1830 | |||
Madrid, Spáni | ||||
Dáin | 9. apríl 1904 (73 ára) | |||
París, Frakklandi | ||||
Gröf | El Escorial | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Ferdinand 7. Spánarkonungur | |||
Móðir | María Kristín af Sikileyjunum tveimur | |||
Eiginmaður | Frans, hertogi af Cádiz | |||
Börn | 4, þ. á m. Alfons 12. |
Loka